157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:10]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Einmitt með forgangsröðun jarðganga, eins og ég kom inn á áðan þá var hún sett fram svona númeruð í fyrsta sinn 2020 og það vill nú þannig til að þó að þetta hafi verið sett fram þar með ákveðnum hætti þá raungerðist ekkert af því. Ég hef alveg velt fyrir mér hvaða tilgangi þetta þjónar. Auðvitað er hægt að vinna að ákveðnum undirbúningi eins og nú er verið að gera. Nú er verið að fjármagna rannsóknir á þremur gangakostum í raun eða jafnvel fjórum ef maður telur Mikladal og Hálfdán sem sitthvora rannsóknina þó að það sé talað um þær saman. Það er verið að undirbúa jarðveginn þannig að það sé hægt að grípa til ólíkra kosta svona eftir efnahagsástandi og aðstæðum hverju sinni og hvað er aðkallandi. En ég er verulega hugsi yfir því hvaða tilgangi það þjónar að vera að setja fram svona númeraða kosti af því að auðvitað býr það til ákveðnar væntingar sem svo er háð ýmsum aðstæðum að raungerist, eins og hv. þingmaður veit manna best, hafandi verið í ríkisstjórn á þeim tímapunkti þar sem ekki var hægt að framfylgja þessari forgangsröðun.