samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Þetta er einmitt áhugavert ártal, 2020. Sá sem hér stendur sat í fjárlaganefnd í mars 2020 og upplifði þetta allt, var reyndar þar líka þegar WOW air féll 2019. Svo kemur þetta áfall, Covid og stríðið í Úkraínu og svo bætast við jarðeldarnir á Reykjanesi. Beinn kostnaður ríkissjóðs á þessum árum, sem kom fram í skýrslu, var 350 milljarðar, heildaráhrifin væntanlega á bilinu 600–700 milljarðar á þessu fimm ára tímabili þegar tekinn er bara virðisaukaskattur og annað sem féll niður, t.d. út af túrismanum, ef allt er tekið. Beinn kostnaður 350 milljarðar, sjáið tölurnar. Auðvitað var bara ákveðið neyðarástand hérna. Það var erfitt að tala fyrir því á þessum tímapunkti að ná fjármagni í innviðaframkvæmdir þegar það var bara verið að reyna að halda sjó. Það er fyrst og fremst það og hafði gríðarleg áhrif. Auðvitað hefði verið gaman ef það hefði verið hægt að halda áfram með það sem gerðist árin á undan vegna þess að þá vorum við að klára nokkur jarðgöng á tiltölulega stuttum tíma, auðvitað hefði það verið gaman. En þetta er gríðarlegt áfall sem verður þarna 2020, byrjar 2019 og 2020, svo 2022 og síðan 2023 þegar Reykjaneseldar byrja. Svona getur maður nú talað sem var í fjárlaganefnd, hvernig upplifunin var. En það var erfitt að fara í miklar framkvæmdir á þessum tíma.