samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir prýðisgóða ræðu. Hann talaði um jarðgangagerð og jarðgangaáætlunina, forgangsröðunina, en samt aðallega um flugvallarmálin. Ég ætla að leyfa mér að halda mig við jarðgangamálin. — Ég hef bara eina mínútu. (Gripið fram í: Já, tala hratt. )Þegar hæstv. innviðaráðherra kynnti samgönguáætlun á sínum tíma þá virðist hann hafa bundið miklar vonir við innviðafélagið. Nú kemur á daginn að það er ekki hægt að setja hvað sem er þar inn og það er ekki hægt að segja innviðafélaginu fyrir verkum og svoleiðis. Telur þingmaðurinn að þessi forgangsröðun jarðgangaverkefna sem ráðherra setur fram í áætlun sinni — telur hann að innviðafélagið geti tekist þessi verkefni á hendur miðað við það sem við vitum í dag?