samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir andsvarið um jarðgangamálin og innviðafélagið. Þetta er mjög fróðleg umræða. Þegar innviðafélagið var kynnt á sínum tíma með þrjú verkefni og framkvæmdir upp á 190 milljarða, Ölfusárbrú, Sundabraut og Fljótagöng, þá verða fljótt til ákveðin vandamál þegar við förum að fá umsagnir og annað. Lífeyrissjóðir og aðrir aðilar eru kannski ekki sérstaklega hrifnir af því að koma með fjármagn inn í einhvern svona vafning margra framkvæmda heldur vilja fyrst og fremst fjárfesta í einstökum verkefnum sem hafa viðunandi arðsemi. Ég held að niðurstaðan verði að það verði mjög erfitt að fá t.d. Fljótagöng inn í innviðafélagið eða önnur jarðgöng úti á landi vegna þess að arðsemin — við vitum að þetta eru þjóðhagslega mikilvægar framkvæmdir en arðsemi á fjárhagslegum nótum er erfitt að sýna fram á og erfitt fyrir ríkisstjórnina að sýna fram á það vegna þess að ég hugsa t.d. með Fljótagöng að tekjur af göngunum myndu kannski duga mögulega fyrir 5–10% af kostnaði við þá framkvæmd.