157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:16]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir svörin og ég heyri að við deilum þessum áhyggjum af stöðu mála. Mig langar að nýta seinna andsvarið til að ræða aðeins meira um þetta nýja innviðafélag sem er raunar órætt hérna í þinginu. Mér skilst að það sé reyndar búið að taka málið út úr nefnd, ég held að það sé rétt hjá mér. En það er þannig að það er hæstv. fjármálaráðherra sem fer með fjárveitingarnar, síðan er það innviðaráðherra sem fer með samgöngumálin. Nú veit ég ekki hvort þingmaðurinn deilir þessu með mér en ég hef verið að velta því fyrir mér hvort við séum þá komin með ákveðinn svona yfirinnviðaráðherra með þessari stofnun innviðafélags. Það tekur bara þau verkefni sem eru arðbær. Er þá ekki hægt að segja að við séum komin með yfirinnviðaráðherra?