157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:17]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Forseti. Hæstv. fjármálaráðherra sé orðinn yfirinnviðaráðherra, jú, jú, það er að mörgu leyti hægt að taka undir það. En það sem gerist þarna líka, eins og hugmyndafræðin einhvern veginn er, er að það á væntanlega að skipa faglega stjórn yfir innviðafélagið og mín persónulega skoðun er sú að þá fer þetta svolítið að líkjast að mörgu leyti ohf.-inu sem kallast Isavia. Þar er aðkoma Framkvæmdasýslunnar og þingsins mjög takmörkuð að því hvernig staðið er að málum. Ég get alveg séð fyrir mér að hjá innviðafélaginu verði það meira stjórn innviðafélagsins sem meti verkefnin og hvað sé sniðugt að gera, hafi mikil áhrif á það, vegna þess að hún hefur skyldu samkvæmt þessu gagnvart þeim sem lána fjármagn eða fjárfesta í fyrirtækinu með beinni eignaraðild að einstökum verkefnum, hvernig sem það verður ákveðið, væntanlega verður móðurfélag og svo dótturfélög þar undir, eða þá með skuldabréfaútgáfu. Þetta er mjög góð spurning að því leyti, bara hvernig það sem snýr að þessu mun þróast. Það er ekki einfalt mál endilega að ná þeim markmiðum fram sem verið er að vinna með í tengslum við þetta. Við tökum þessa umræðu vonandi mjög fljótlega. En þetta er allt mjög tengt; það sem snýr að samgönguáætlun, innviðafélaginu, fjármálaáætlun og svona heildarmyndinni af þessu. En ég persónulega, sá sem hér stendur, hef sagt það mjög lengi og oft hér í pontu Alþingis, ég hef alltaf haft áhyggjur af ohf.-inu, hvernig Isavia-dæmið er (Forseti hringir.) og það ber að varast að við lendum í ógöngum með þetta með sambærilegum hætti.