157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:19]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir ágæta og yfirgripsmikla ræðu og sérstaklega það að hann komi hér og lýsi bara yfir fullum stuðningi við Fljótagöng. Ég held að það sé mikilvægt. Sumir hafa verið að nýta umræðuna til að segja að mögulega passi Fljótagöng ekki inn í nýtt innviðafélag og jafnvel nota þann þátt til að grafa undan því að þau séu næst í röðinni. Mér finnst gott að heyra þennan stuðning. En aftur að fjármögnun þeirra verkefna sem eru fram undan og við erum sammála um að það væri óskandi að flýta framkvæmdum við flugvelli, sérstaklega Akureyrarflugvöll, varðandi lendingarljós og fleiri þætti sem eru bráðnauðsynlegir fyrir uppbyggingu kjördæmisins. Það væri fróðlegt að heyra það frá hv. þingmanni hvort hann væri tilbúinn að bæta í varaflugvallargjaldið, gott ef það er ekki 200 kr., til að hraða uppbyggingunni eða sér hann einhverja aðra leið, t.d. að ná einhverjum fjármunum inn í þetta frá Isavia.