samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir andsvarið. Svo það sé nú sagt þá styð ég auðvitað Fljótagöng en ég var hins vegar að segja í minni ræðu að það hefði verið eðlilegast að byrja með Fjarðarheiðargöng og byggja á þeirri stefnumótun sem var búið að vinna og það plagg sem þar var. Það var það sem ég var að segja. Ég fer ekki að tala á móti neinum göngum eða öðru, ég er bara að segja að það væri eðlilegast að klára þá forgangsröðun sem búið er að vinna með og sem náðist pólitísk niðurstaða um hér á þingi. Það er mjög vont ef það er stöðugt verið að breyta flóknum verkefnum eins og jarðgöngum. Það var búið að setja í Fjarðarheiðargöng 600, 700 milljónir og það hefði verið eðlilegt að fara dýpra í það.
Varðandi varaflugvallargjaldið þá er það ekki bara Norðausturkjördæmið sem við erum að tala um í þessu samhengi. Við erum að tala um flugvallarmál og flugöryggismál á landsvísu í stóru myndinni. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir flugþjóð eins og okkur Íslendinga, sem hefur gríðarlega mikla hagsmuni af flugi sem eyja úti í Atlantshafi með gríðarlega stóran — þarna missti ég bara 20, 25 sekúndur, varstu að fikta, herra forseti? En þetta er á landsvísu gríðarlega mikilvægt.
Varaflugvallargjaldið, rétt í lokin: Nei. Ég get alls ekki talað fyrir því að hækka varaflugvallargjaldið núna ef framkvæmdarvaldið, ráðuneytið eða ríkisstjórnin ætlar ekki að nýta þá peninga sem koma í gegnum varaflugvallargjaldið til þeirra framkvæmda sem styrkja flugöryggi í landinu (Forseti hringir.) eins og er verið að boða í þessari samgönguáætlun, vegna þess að 200 kr. hefðu bara dugað til að klára öll þessi verkefni sem er verið að benda á hér á sirka tíu árum.
(Forseti (BergÓ): Forseti minnir á að ræðutimi er styttur í eina mínútu í báðum umferðum þegar fjórir þingmenn óska eftir athugasemdum. Og enn eru 60 sekúndur í hverri mínútu.)