samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég held að flestir hér inni viti að menn eyða nú ekki sömu krónunni tvisvar. Við erum líka með fjármálaáætlun og við þurfum að ná endum saman og ég vona svo sannarlega að Sjálfstæðisflokkurinn sé ekki kominn inn á þá braut að halda að menn geti eytt sömu krónunni tvisvar og boði þá aukin útgjöld en ekki neinar tekjur fyrir ríkissjóð. Mér finnst það ekki ábyrgt og ég vona svo sannarlega að hv. þingmaður komi þá með einhverjar tekjur á móti. En mér finnst koma til greina jafnvel að hækka varaflugvallargjaldið og tryggja að það skili sér, ég er alveg sammála hv. þingmanni um það, að það skili sér betur til þeirra útgjalda sem það er markað. Ég ætla ekki að draga í efa að það hefði mátt gera það þegar það var tekið upp 2023. Mér finnst skipta máli að við sýnum ákveðna ábyrgð í þessari umræðu því að öll erum við sammála um markmiðið, að tryggja góðar samgöngur um landið allt.