samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Það er nefnilega þannig varðandi varaflugvallargjaldið að þegar skýrslan var gerð og henni skilað í nóvember 2018 var lagt til að varaflugvallargjaldið yrði 100–300 kr. og það yrði bara reiknað út nákvæmlega hver talan yrði til að vinna með þetta. Ef fjármálaráðherra og innviðaráðuneytið hefðu skilað þessum peningum og þeim væri skilað sem koma af varaflugvallargjaldinu þrátt fyrir lög um opinber fjármál þá hefði það dugað til þess að ganga í þessar framkvæmdir og klára þær. Þannig að við þurfum ekki að tala um frekari skattheimtu ef það væri bara unnið eins og var lagt af stað með í þessa vegferð. Þegar við tölum um innviðafélag eða hvað það sem við gerum hér; ef við getum ekki treyst því að það sé unnið af einhverri skynsemi með málin og ekki kippt stoðunum undan þeim bara einn, tveir og þrír þegar nýbúið er að taka þau í notkun þá er illa fyrir okkur komið. Varaflugvallargjaldið varðandi flugvellina hefði tryggt allar þær framkvæmdir sem þurfti að fara í ef það hefði bara skilað sér. Það eru enn öll færi á því að þessar 1.500–1.600 milljónir skili sér á ári og við getum gert góða hluti hérna á næstu árum.