157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:25]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vísa hér til orðaskipta sem urðu áðan þar sem spurt var hvaðan talan 2.100 m í brautarlengd væri komin. Hún er komin úr skýrslunni Flugvallakostir á suðvesturhorni landsins frá 2019 sem unnin var undir forystu Eyjólfs Árna Rafnssonar, eins og raunar áður kom fram. Fylgiskjal með skýrslunni ber það með sér að þarfagreiningin er komin frá Þorgeiri Pálssyni, prófessor og fyrrverandi flugmálastjóra.