157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:26]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Skýrsla Þorgeirs Pálssonar, fyrrverandi flugmálastjóra, á sínum tíma um tvo flugvelli á suðvesturhorninu — þar kom alveg fram, og hans skilningur var og því var síðan svarað í fjölmiðlum — að Reykjavíkurflugvöllur dygði til þeirra nota sem var gert ráð fyrir og var skrifað í skýrslu fyrrverandi flugmálastjóra. Það kemur líka fram í nefndaráliti meiri hlutans í þessu að vélar fari stækkandi og eitthvað. Það sem er að gerast núna í byrjun næsta árs, sem mér finnst leiðinlegt, er að Icelandair fer að hætta með rekstur á 767 vélunum. Þá verða þeir ekki lengur með breiðþotur í sínum rekstri, það verða ekki breiðþotur að fljúga til og frá landinu. Vélarnar eru raunverulega frekar að minnka heldur en að stækka. MAX-vélar Icelandair, Boeing 737 MAX, eins og sýndi sig 26. febrúar, geta vel notað Reykjavíkurflugvöll og Airbus 321 vélarnar sem eru núna að koma hratt inn í flugflota Icelandair geta líka notað völlinn en það er eitthvert pikkles með að fá að gera það. Það er hins vegar eitthvað sem þingið á að skoða, Samgöngustofa kláraði það mál, að þær vélar geti notað Reykjavíkurflugvöll. Það er risastórt flugöryggismál.