samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka andsvarið. Þessu er hér komið til skila og ég hef litið þannig á að þetta sé ákveðin lágmarkslengd. Kannski væri hyggilegra að hafa brautina lengri, ég er ekki viss um það. Þetta miðast bara við tilteknar forsendur sem eru raktar í þessari skýrslu. Ég held að það þurfi bara að fara vel yfir þessi mál, ekki bara eins og oft er gert vegna veðurskilyrða eða annars heldur líka vegna fjölþáttaógna. Við höfum séð flugvelli í Evrópu lokast heilu og hálfu dagana vegna drónaflugs. Auðvitað vonar maður að slíkt komi ekki fyrir hér. En ég lærði það bara og það er inngreipt í mig úr almannavörnunum að maður þarf ekki bara að búa sig undir það sem er líklegast að gerist heldur það sem er hugsanlegt að geti gerst, sérstaklega ef það getur haft mjög dramatískar afleiðingar. Við erum býsna stór flugþjóð. Við stefnum að því að verða enn þá stærri flugþjóð, við þurfum að taka þetta alvarlega en af stillingu og fara í þessi verkefni.
(Forseti (BergÓ): Forseti þakkar hv. þingmanni fyrir að hafa ekki nýtt allar tíu mínúturnar sem voru á klukkunni.)