samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Við ræðum samgönguáætlun og ég vil þakka fyrir þær góðu umræður sem hafa verið hér í dag. Ég þakka nefndinni fyrir gott og ánægjulegt samstarf. Mig langar til að nýta þessa ræðu aðeins til að fara yfir stóru myndina, aðeins að fara yfir hvernig þetta horfir við manni í stóru myndinni. Samgönguáætlun er ekki einhvers konar listi yfir vegi, brýr, jarðgöng, hafnir, flugvelli og ferjur. Samgönguáætlun er í raun miklu stærri en það. Þetta er ein mikilvægasta byggðaáætlun landsins. Hún felur í sér nána tengingu við atvinnustefnu. Þetta er öryggisstefna eins og við höfum verið að ræða í samhengi við flugið. Samgönguáætlun er í sjálfu sér líka loftslagsstefna í samhengi við hvernig innviði við byggjum upp, í samhengi við orkuskiptin. Hún er líka ákveðið jafnræðis- og jafnréttismál ef við horfum á ólík landsvæði á Íslandi. Í raun og veru snýst þessi áætlun, sem heitir þessu þunga nafni, kannski í kjarna sínum um það hvort fólk geti búið og starfað, sótt þjónustu, byggt upp verðmæti og hreinlega lifað öruggu lífi um allt land. Þess vegna er svo mikilvægt að við séum ekki að ræða samgönguáætlun bara út frá einstaka framkvæmdum heldur séum við dálítið að horfa á þessa heildarmynd. Stóra myndin er kannski þessi að við á Íslandi, þó að við séum að ræða um innviðaskuld og við séum að ræða um þessa miklu og brýnu þörf, höfum í sögulegu samhengi gert ótrúlega hluti á undanförnum áratugum sem snúa að samgöngumálum og við eigum víða góða og sterka innviði, hafnir og flugvelli og annað sem er öflugt. En við erum núna að ræða það hvernig við ætlum að byggja fjárfestingar fyrir, ekki bara nútíðina heldur fyrir framtíðina, fyrir kannski næstu áratugi og þess vegna er alveg ljóst að þörfin er gríðarlega mikil. Hún er mikil vegna margra þátta. Við vitum öll að ferðamönnum hefur fjölgað mikið. Síðan hafa landflutningar stóraukist með tilheyrandi sliti á vegum en þeir hafa líka hjálpað okkur við að koma verðmætum hraðar á markað. Íbúum hefur vissulega fjölgað. Atvinnulíf kallar eftir öruggari tengingum. Það er meiri krafa á það, t.d. í útflutningi, að geta komið fiski hraðar á markað og annað slíkt. Þannig að það eru kannski aðrar samfélagskröfur sem við búum við í dag heldur en ef við horfum áratug eða meira aftur í tímann. Við getum búist við því að framtíðarkynslóðirnar sem við erum að vinna fyrir hér í dag geri enn ríkari kröfur þannig að það skiptir máli að við séum að halda vel á spöðunum. Við getum því ekki bara verið að horfa á það hvort vegir séu góðir í samhengi við fortíðina, við þurfum að vera að horfa á framtíðina með skýrri sýn og öflugri fjárfestingu.
Virðulegur forseti. Mig langar, í samhengi við þessa áætlun sem er lögð fram, að byrja á því sem ég tel að sé jákvætt við þá vinnu sem hefur verið unnin af því að hún er mikil og hún er ítarleg. Í fyrsta lagi langar mig til að taka undir það sem kemur fram í áætluninni, það er gríðarlega mikil viðhaldsþörf. Mér finnst gott að við séum að undirstrika það, það er verið að setja aukafjármagn þar. Það er einfaldlega risastórt verkefni sem skiptir máli að draga fram. Mér finnst líka jákvætt að það sé verið að setja þessa þætti í samhengi við þjóðaröryggi. Það er verið að horfa á þetta í samhengi við áfallaþol, því að eins og ég hef sagt: samgöngur varða ekki bara þægindi, þetta er hluti af viðnámsþróttinum okkar, sama hvort við erum að horfa á öryggismálin í alþjóðlegu samhengi eða bara ef slys eiga sér stað. Þetta eru einfaldlega þessar lífæðar sem ólík samfélög treysta á. Þegar við erum að horfa á samgöngurnar þá erum við auðvitað að horfa á vegakerfið. Við erum að horfa á flug, við erum að horfa á ferjur og mér finnst líka jákvætt að við séum að leggja meiri áherslu á almenningssamgöngur. Ég hef nú stundum sagt að þegar maður tók rútuna í sveitina í gamla daga, Austurleið, þá var hún full af ferðamönnum. Þá var það ekki þannig að hver einasti ferðamaður væri á einkabíl þannig að það er líka svo mikilvægur þáttur til að létta álag á vegum að við séum að horfa á öflugar almenningssamgöngur. Svo vil ég nefna ferjuáætlun sérstaklega. Samfélög sem treysta á ferjusamgöngur þurfa að hafa miklu meiri skýrleika þegar kemur að fjárfestingu ríkisins í þessum málaflokki. Við höfum séð það svo ótrúlega skýrt í samhengi við Vestmannaeyjar hversu mikilvægt það er að hafa skýrleika, bæði í ferjusiglingum og svo auðvitað líka í viðhaldi og fjárfestingu í þeim höfnum sem þær ferjur treysta á. Því fagna ég að við séum að horfa á ferjuáætlun hér í þessari samgönguáætlun.
Mig langar til að koma aðeins inn á fjárhagshliðina bara til að við horfum aðeins á stóru myndina líka, að þörfin sem við erum að horfa á er gríðarlega mikil. Ef ég horfi á þær tölur sem birtast í samgönguáætlun þá held ég að það sé alveg ljóst að okkur vantar enn a.m.k. 20–30 milljarða árlega ef við ætlum að ná utan um þetta verkefni. Fjármögnun er ekki fullnægjandi. Fjármálaáætlun sýnir okkur í raun og veru að fjárfestingarrammi málefnasviðsins er nánast flatur. Það er ákveðin aukning núna en svo er hann nánast flatur það sem eftir er áætlunarinnar. Þar af leiðandi blasir það við okkur að við þurfum að hugsa stærra og ég óttast það hreinlega að við séum ekki að taka nógu djörf skref. Ég ætla að koma aðeins inn á innviðafélagið hérna á eftir en ég velti því hreinlega fyrir mér núna þegar við erum að horfa á meiri slaka í hagkerfinu hvort við eigum, í staðinn fyrir að vera að horfa á alveg hallalaus fjárlög, að setja frekar aðeins meira í fjárfestingar til þess einfaldlega að tryggja að þessir innviðir geti þjónað okkur betur og við séum að leggja meira upp úr innviðafjárfestingunni. Svo sýnist mér að við séum að sjá ákveðna lækkun líka á tímabilinu þegar kemur að framkvæmdafé til nýrra verkefna. Það er í sjálfu sér áhyggjuefni því að þótt viðhald sé gríðarlega mikilvægt þá eru bara svo mörg verkefni sem bíða og þó að þau flokkist undir nýfjárfestingar þá má í grunninn segja að þau ættu kannski að flokkast hreinlega undir viðhald.
Þá langar mig að koma aðeins að niðurstöðu samgönguáætlunar. Við bundum vonir við það, nefndin í heild, að það væri aukafjármagn sem kæmi í tengslum við stofnun innviðafélags. Ég held að við getum sagt það sameiginlega að það séu ákveðin vonbrigði að eftir að vera búin að fá allar þessar umsagnir og að það er búið að fara yfir rýni allra þessara aðila getum við ekki brugðist við þeim augljósu ábendingum sem hafa komið fram sem varða sjóvarnir, sem varða flugvelli á landsbyggðinni, sem varða einbreiðar brýr. Það er alveg ljóst að það eru ákveðin landsvæði sem verða eftir. Hins vegar tek ég undir að sú tillaga sem nefndin gerir um ákveðin forgangsmál, skapist rými með stofnun innviðafélags, er mjög jákvæð. Kannski mun það hvernig við dæmum þessa samgönguáætlun litast af því hvort það tekst á þessu kjörtímabili að koma þeim verkefnum í framkvæmd og sömuleiðis hvort það tekst að skapa enn meira svigrúm, sem mér sýnist, ef ég skoða fjármálaáætlun, að sé nauðsynlegt ef það á raunverulega að byrja að bora eins og sagt hefur verið. Það þarf meira svigrúm í gegnum innviðafélagið svo raunverulega sé hægt að ráðast í verkefni því að flest þessara verkefna sem við erum að tala um eins og Fjarðarheiðargöng — ég get ekki betur séð en að þau þurfi verulega fjárhagslega meðgjöf sem þarf þá að finna fjármagn til einhvers staðar. Ég held að það sé þá mikilvægt að sem flest verkefni nái að fara inn í nýtt innviðafélag.
Þá aðeins að innviðafélaginu, vegna þess að það er svo ótrúlega nátengt árangri samgönguáætlunar. Ég held við séum dálítið að horfa á þetta samspil. Það er alveg ótrúlega mikilvægt að innviðafélagið heppnist vel og ég styð að það sé komið á laggirnar en það er ekki alveg sama hvernig það er gert. Ég get alveg tekið undir áhyggjur hv. þm. Njáls Trausta Friðbertssonar varðandi það að maður hræðist að ákveðnu leyti formið vegna reynslu Isavia og líka í samhengi við samanburðinn við Landsnet því að það verður að vera ákveðin pólitísk ábyrgð á tímasetningu verkefna, á fjármögnun og öðru. Hins vegar get ég sagt, eftir að hafa farið yfir málin með þeim sérfræðingum sem eru að vinna að því, að það virðast vera leiðir til þess að tryggja það að jafnvel þótt verkefni séu ekki arðbær þá sé samt hægt að fara í þau í gegnum dótturfélög ef það eru ákveðnar tryggingar á farþegafjölda og öðru. En ég tel mikilvægt að þetta sé alveg ákaflega skýrt því að við viljum heldur ekki lenda í því að innviðafélagið verði einhvers konar biðstofa fyrir ný verkefni og jafnvel, eins og komið var inn á hér áðan, að það skapi hvata til að dregið sé saman í fjárfestingu samgönguáætlunar. Útfærslan á þessu er því algjört lykilatriði. En heilt yfir þá finnst mér þetta vera mjög mikilvægt verkefni og ég vil vinna að því að það verði að veruleika og að við getum farið að sjá stærri verkefni fjármögnuð sem allra fyrst.
Síðan langar mig að koma aðeins inn á innviðafélagið í tengslum við samfélagslegan ávinning. Ég held aftur að þá þurfum við að vera alveg skýr um hvernig þetta teiknast upp, að innviðafélagið sé fyrst og fremst að fara að nýtast til að hraða framkvæmdum sem eru fjárhagslega arðbærar. Hins vegar verðum við að passa upp á að þau verkefni sem geta átt heima innan félagsins fái þá fjárhagslega meðgjöf. Þá kem ég að samspilinu við fjármálaáætlun. Ég sé að það eru þingmenn hér í salnum sem eru í fjárlaganefnd, a.m.k. einn þingmaður. Það svo mikilvægt að þessi meðgjöf, við sjáum það kannski ekki í samgönguáætlun en það ætti þá að birtast í fjármálaáætlun, geri þá ráð fyrir ólíkum verkefnum svo við getum passað upp á að ef innviðafélagið er stofnað þá sé til svigrúm þannig að þau verkefni sem eru t.d. í jarðgöngunum, eins og Fjarðarheiðargöng, komist raunverulega til framkvæmda. Ég tel að það sé mikilvægt að huga að því. Til að undirstrika það sem ég sagði áðan þá verðum við að passa upp á að þessi pólitíska ábyrgð haldi í þessu samhengi við innviðafélagið.
Virðulegi forseti. Ég held að þessar útfærslur og hvernig meðgjöf í gegnum annaðhvort tilfærslu verkefna frá samgönguáætlun eða það hvernig fjármögnunin birtist á fjármálaáætlun sé grundvallaratriði. Það er grundvallaratriði, ekki endilega fyrir verkefni sem eru arðbær og eru þá á Hvítár-Hvítársvæðinu eða í kringum Eyjafjörðinn, það er grundvallaratriði fyrir verkefni sem eru annars staðar á landsbyggðinni upp á það að við getum verið að nýta allt aukasvigrúm til að ráðast hraðar í þau. Það er kappsmál sem ég veit að þeir þingmenn sem koma frá Vestfjörðum eða öðrum stöðum á landinu — þetta er tækifæri til að skapa svigrúm til þess að við getum ráðist hraðar í þau verkefni sem eru ekki arðbær. Ég get bara sagt: Það er svo auðvelt að horfa á þessi verkefni stundum í þröngu samhengi en ef maður horfir bara á hringtengingu á Austurlandi er alveg ljóst að það geta orðið margfeldisáhrif þannig að þó að göngin ein og sér séu kannski ekki efst á blaði ef horft er á hversu arðbær Fjarðarheiðargöng eru, ef maður horfir á margfeldisáhrifin fyrir Austurland þá held ég að — það eru svo mikil ruðningsáhrif sem samgönguáætlun ein og sér nær ekki utan um þannig að ég held að það sé lykilatriði að við séum að passa upp á að uppbygging innviðafélags og öll meðgjöf sem slíkt félag þarf mögulega að fá sé tryggð í fjármálaáætlun.
Þá langar mig til að velta upp hér með ykkur hvernig við getum hraðað verkefnum enn frekar. Ég hef áhyggjur af því þegar ég skoða áætlunina í heild að það eru svo mörg verkefni sem eru mikilvæg sem verið er að færa yfir á annað eða þriðja tímabil. Og eins og við vitum sem sitjum hér þá er ekkert fast í hendi nema það sem er á fyrsta tímabili. Ég hef verið að spyrja framsögumenn og þá sem eru í meiri hluta, ég hef áhyggjur af því hreinlega að það sé verið að færa of mörg verkefni aftar en einnig finnst mér ekki birtast mikil aukning sem hefur verið talað um í fréttum, að það sé svona mikil viðbótarfjárfesting sem birtist í þessari áætlun. Þvert á móti finnst mér vera þessi einskiptisaukning og svo heldur hún frekar flöt áfram. Þannig að ég hef áhyggjur af því að það verði erfitt að standa undir þeim væntingum sem er verið að byggja upp um allt land í samhengi við áætlunina og í samhengi við innviðafélagið. Mér finnst það vera betri pólitík að segja hlutina eins og þeir eru. Það er margt gott í áætluninni. Þessi tillaga sem meiri hlutinn leggur fram er góð, hún tekur á mörgum þáttum, en það þarf miklu meira ef við ætlum að ná utan um þessar áskoranir og það þarf að tryggja að innviðafélagið sé rétt fjármagnað og að samgönguáætlun verði síðan fullfjármögnuð í fjárlögum hvers árs sömuleiðis.
Mig langar líka að tala aðeins um nýsköpun í samhengi við samgönguáætlun. Auðvitað eru orkuskipti hluti af því en það er líka ótrúlega mikilvægt núna þegar við erum að tala um blæðingar á vegum að við hugsum aðeins til þess að það voru gerðar breytingar á rannsókn og þróun sem sneri að þeim efnum sem við erum að nýta. Ég held að þar séu tækifæri fyrir okkur að passa upp á að við séum að nota alla þá þekkingu sem er til hér á landi og annars staðar til að besta og finna nýjar leiðir fyrir okkar einstaka veðurfar. Ég held líka að gervigreind og annað geti hjálpað okkur að vinna áætlanagerð og kannski lágmarka sóun í kerfum, af því að þetta snýst ekki bara um að fá inn meira fjármagn og gera hlutina eins. Ég held að það séu líka tækifæri í að gera hlutina með nýstárlegum hætti og ég sakna þess að við séum að horfa á það sérstaklega í þessari áætlun. Kannski er það eitthvað sem við getum horft á ef við horfum til umræðunnar hér að ári.
Virðulegi forseti. Eins og ég sagði hér í upphafi þá er samgönguáætlun breið áætlun sem kemur inn á það stóra viðfangsefni: hvert stefnum við sem þjóð? Það kann að hljóma háfleygt en það er einfaldlega sannleikurinn ef við horfum á mikilvægi þessarar áætlunar fyrir allar byggðir, fyrir alla atvinnuvegi, fyrir allt það hvernig samfélagið okkar þróast og hvort það sé öruggt og hvort það hafi viðnámsþrótt. Því held ég að sú aukning sem við erum að sjá hér núna, sem er frábær — ég held að við þurfum að hugsa miklu stærra. Við þurfum að nálgast þá hugsun sem var til staðar þegar við áttum enga peninga og vorum að fara í stór verkefni eins og t.d. í orkumálunum. Það hvernig okkur tekst til núna mun hafa svo ótrúlega mikil áhrif fyrir komandi kynslóðir og ég held að við þurfum að nýta þennan slaka í hagkerfinu til þess að ná enn meiri árangri á þessu sviði.