samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir prýðisgóða ræðu og sömuleiðis fyrir mjög gott samstarf í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Mér skilst að umræðan sé bara búin að fara ágætlega vel af stað hér. Ég sótti orkuþing á Vestfjörðum í morgun og náði með fluginu vestur á Ísafjörð að skoða aðeins aðstæður, fór í svona smá könnunarleiðangur þar og náði að komast vestur og aftur til baka í dag, sem er nú ágætt. Ég missti því aðeins af upphafi umræðunnar en verð hér í dag og hlakka til að eiga gott samtal um þessa mikilvægu áætlun.
Mig langaði í fyrra andsvari aðeins að fara yfir það sem hv. þingmaður fór yfir hér, um þetta framkvæmdafé sem er nýtt til nýframkvæmda og hvernig það birtist í áætluninni. Ég er mjög spennt að sjá hvernig samspilið verður á milli innviðafélags annars vegar og samgönguáætlunar og þeirra verkefna sem Vegagerðin mun halda utan um vegna þess að þær nýframkvæmdir eða stórframkvæmdir sem eru þar undir eru auðvitað umtalsverðar. Ég get nefnt Sundabraut. Ég get nefnt Ölfusárbrú og ég get nefnt Hvalfjarðargöng II og fleiri dæmi sem eru gríðarlega stór og mikilvæg. Þegar maður horfir kannski á samgönguáætlun í heild og áttar sig á heildarsamhengi hlutanna, eftir að hafa tekið á móti yfir 100 gestum og áttað sig á því að þörfin er mikil, þá hljótum við að vera sammála um að við þurfum einhvers staðar að byrja. Ég held að þetta snúist ekki um flokkspólitík hér í þessum sal. Ég held þetta snúist um það hvernig við þokum hlutunum áfram og þess vegna langaði mig aðeins að forvitnast meira um það hvernig við nýtum samspilið á milli þess að tryggja það að við förum í viðhaldið og einnig nýframkvæmdir. Það er ákveðinn freistnivandi að seilast í viðhaldspottinn og setja í nýframkvæmdir en við ætlum ekki að gera það núna. Við ætlum að standa vörð um viðhaldspottinn vegna þess að viðhaldsþörfin er gríðarleg. Mér finnst alla vega þetta samspil vera nokkuð skýrt en væri til í að fá frekari útskýringar á því.
(Forseti (BergÓ): Forseta láðist hér við upphaf andsvara að tilgreina að þrír þingmenn óskuðu eftir að veita andsvar þannig að ræðutími er styttur í eina mínútu í seinna skiptið.)