157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:54]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og byrja á að þakka henni fyrir skörulega stjórn í nefndinni og gott samstarf. Varðandi viðhaldið þá tek ég undir að það er gríðarlega mikil viðhaldsþörf, eins og ég kom inn á, en það er alveg ljóst að stundum eru skilin á milli viðhalds og nýframkvæmda, vegna þess að innviðirnir eru orðnir svo gamlir, mjög óljós. Ég var að keyra t.d. frá Höfn og suður um daginn og ég hugsaði um allar þessar brýr sem voru margar byggðar kannski í kringum 1940–1950 og aðeins nær í tíma, þær eru orðnar margra áratuga gamlar. Þær eru margar þannig, ef við erum að hugsa um t.d. útflutningsgreinar á Austfjörðum, að það er komið að viðhaldi sem ber þungaflutninga. Það sem ég á við er að stundum eru þessi skil óljós. Ég held að í slíkum tilfellum sé gott að einfaldlega taka skrefið jafnvel, þ.e. það sé hægt að rökstyðja að framkvæmdir séu í raun og veru viðhaldsframkvæmdir.

Hv. þingmaður kom inn á annað ótrúlega mikilvægt atriði sem er samspilið við innviðafélagið. Mig langaði kannski aðeins að koma inn á hversu mikilvægt það er, af því að þessi viðhaldsþörf er svo rík og líka nýframkvæmdaþörfin, ef það eru framkvæmdir sem færast yfir til innviðafélagsins, að við sláum ekki slöku við í fjárlögum hvers árs þegar kemur að samgönguáætlun. Samgönguáætlun sé í forgangi þegar kemur að fjármögnun vegna þess að það er svo mikilvægt fyrir allt landið og atvinnuvegina og það svigrúm sem skapast verður að vera nýtt fyrir veikari svæði til að styrkja þau. Ef það er ekki passað upp á það má segja að það skapist ákveðin áhætta á að ríkari svæðin verði ríkari og hin verði fátækari. Ég held að við sem erum að tala (Forseti hringir.) fyrir landsbyggðarkjördæmunum séum dálítið sammála í því hversu mikilvægt það er að fjármagnið nýtist til að fara í viðhald og nýframkvæmdir á veikari svæðum svo allt landið rísi.

(Forseti (BergÓ): Forseti minnir á ræðutíma.)