157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:57]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er nefnilega algjörlega kjarni málsins. Það er grundvallaratriði að fjármagnið nýtist og við förum vel með það fé sem þó er veitt til samgangna og í samgönguáætlun á Íslandi af því að það veitir ekki af. Á þessu aðgerðaáætlunartímabili er það um 361 milljarður sem fer núna inn í kerfin og sem skiptir ofboðslega miklu máli að nýta vel á öll landsvæði til að við finnum raunverulega fyrir ábatanum. Það er auðvitað sláandi að sjá, og ég mæli með því að fólk skoði það inni á svæði málsins hjá nefndinni, það er hægt að sjá fylgigögn frá Vegagerðinni þar sem farið er yfir viðhaldið og hver raunstaðan er. Ef við grípum ekki inn í núna þá erum við komin í einhvers konar veldisvöxt þar sem við sjáum bara vegina okkar hreinlega eyðileggjast og grotna niður. Þetta er ein stærsta fjárfesting og eitt stærsta eignasafn íslenska ríkisins. Mér finnst mjög mikilvægt að halda því til haga að við erum að standa vörð um viðhaldspottinn vegna þess að hann dugar ekki einu sinni til að ná utan um þann vanda sem blasir við. Hann rétt nær að tryggja það að lekinn minnki. En við verðum að gera enn betur. (Forseti hringir.) Ég er sammála hv. þingmanni með það að mikið væri nú gaman ef það væri til endalaust af peningum.