samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar, það var engin sérstök spurning sem ég skynjaði hjá þingmanni en kannski bara til að grípa þetta á lofti þá erum við hér að vinna með eitthvað sem snertir öll samfélög landsins og eins og við höfum fundið svo sterkt fyrir á nefndarfundum þá hafa öll samfélög, sum sem hafa dregist kannski meira aftur úr en önnur, væntingar og ég sem nýr þingmaður í stjórnmálum — það hafa verið gríðarlega miklar væntingar um að við förum í stórátak í fjárfestingum á innviðum. Þess vegna held ég að það sé mikilvægt að við höldum því til haga í samhengi við verðbólgu og í samhengi við stöðu fjármála að það er ekki svo mikil viðbótarfjárfesting. Hún er vissulega þarna, hún er að nýtast í viðhald, sem er jákvætt, en það er ekki dramatísk aukning á milli ára í fjárlögum í sjálfu sér. Þess vegna held ég að ef ríkisstjórnin og við öll sem erum að vinna að þessum málum saman eigum að standa styrk með þeim væntingum sem er búið að teikna upp, þá ríður alveg ofboðslega mikið á því að framkvæmd innviðafélagsins heppnist. Ég ætla bara að segja það að fyrir mér er útfærslan á því, að það svigrúm sem mögulega skapast sé nýtt til að fjárfesta í samfélögum um allt land þar sem eru óarðbær verkefni sem slíkt félag mun ekki fara í — það er kjarninn. Svigrúm þarf að nýtast til að byggja upp á ólíkum stöðum á landinu þannig að allt landið rísi.