157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:03]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og bara þannig að ég byrji á því fyrsta, varðandi þessa vissu eða óvissu, þá tek ég undir með hv. þingmanni hversu mikilvæg framkvæmd þessara þátta er upp á að það sé raunverulega hægt að ráðast í þessi verkefni. Það versta sem ríkisstjórnir hvers tíma gera er að mála upp einhverjar skýjaborgir sem síðan geta ekki staðist. Ég kalla eftir því að umræðan hér um það hver raunveruleg aukning er á milli fjárlaga og annað sé mjög yfirveguð og við séum alltaf að tala um staðreyndir málsins því við erum best í því að finna saman út úr hlutunum ef við erum með fast land undir fótum hverju sinni.

Þá komum við að þessari mikilvægu spurningu sem snýr að þjóðaröryggi. Ég tel að sú breytingartillaga sem lögð hefur verið fram — ég fagna því að þar er verið að leggja meiri áherslu á þá vinnu að tvinna saman samgönguáætlun við stefnu um þjóðaröryggi. Það er mjög jákvætt. Ég fagna því líka að í breytingartillögunni, í þeim verkefnum sem eru listuð upp og á að fara í, er líka verið að horfa á viðbót í málum sem snúa að flugi. Það er annað sem tengist þjóðaröryggismálum sömuleiðis. Hins vegar er alveg ljóst að þessi breytingartillaga þarf að komast til framkvæmda og það veltur á innviðafélaginu og eins og ég sagði áðan þá má kannski segja að úrslitadómurinn um það hversu góð þessi samgönguáætlun er byggist á því hvort það takist að koma þessari breytingartillögu til framkvæmda og hvernig takist að vinna úr þeim áherslum sem settar eru fram þar og þar á m.a. þjóðaröryggi að hafa mikla rýmd og stóran sess. Ég vil að endingu segja að þegar við erum að tala um þessi auknu fjárframlög til öryggis- og varnarmála og annað (Forseti hringir.) þá vil ég sjá miklu skýrari forgangsröðun í íslensku samhengi við innviði og við matvælaöryggi heilt yfir.