157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:06]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek einmitt undir þetta. Það væri kannski til þess að æra þingheim ef ég færi að tala um þjóðaröryggi og flugið vegna þess að það er málaflokkur sem væri hægt að tala mjög mikið um hvað varðar öryggismál, hversu stórt og mikilvægt þetta er og er lykilatriði. Þetta mun þróast mjög á næstu árum sem og hvernig við ætlum að sinna þessu öllu saman.

Það var komið aðeins inn á einbreiðar brýr í umræðunni áðan og hv. þingmaður kom inn á þær í andsvörum. Það er búið að vera mikið átak í töluverðan tíma og í kjördæmi hv. þingmanns hefur kannski náðst mesti árangurinn í að fækka einbreiðum brúm á því svæði og í þessari áætlun á að fækka um tvær einbreiðar brýr. Það hefur orðið ótrúlega skörp þróun á síðustu 10–15 árum varðandi einbreiðar brýr og í þessari samgönguáætlun er gert ráð fyrir, eins og var kannski komið í þeirri fyrri sem var í vinnslu, að á tíma samgönguáætlunar verði einbreiðum brúm útrýmt. Það er mjög stórt og veigamikið. (Forseti hringir.) Mestu framkvæmdir í samgöngumálum og vegagerð á Íslandi á undanförnum árum hafa raunar verið á Suðurlandi og á Vestfjörðum.