samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég vil bara taka undir það sem hann hefur sagt hér, það hefur margt verið gert þegar kemur að einbreiðum brúm, enda erum við að tala um miklar slysagildrur, slysagildrur fyrir íbúa, fyrir sístækkandi atvinnuveg sem er ferðaþjónusta og við erum líka að tala um miklar áskoranir þegar kemur að þungaflutningum því að margar af þessum einbreiðu brúm eru bara ekki hannaðar til að bera þann mikla þunga sem nútímasamfélag kannski gerir kröfu um þannig að ég fagna því að það sé verið að leggja meiri áherslu á það í breytingartillögunni og ég vona að hún nái fram að ganga. Hér er talað um að við lok tíma samgönguáætlunar eigi að vera búið að útrýma einbreiðum brúm um landið. Ég held að við eigum að vera miklu djarfari hvað það varðar því eins og Vegagerðin hefur orðað það þá er það þannig að þegar þeim er fækkað og þær fara að verða mjög sjaldgæfar þá eru þær líka alveg stórhættulegar því þá gerir fólk sér engan veginn grein fyrir því að þær gætu verið á næsta leiti.