157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:09]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar ágætu ræðu hér í púltinu. Nú er verið að velta því fyrir sér að mögulega komi kannski 6,3 milljarðar í haust úr innviðafélaginu ef Kjalarnesvegur fer inn, alls konar svona æfingar sem eru í gangi núna. Þar komi mögulega inn 6,3 milljarðar. En ef maður veltir því fyrir sér, eins og kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans, að heildarútgjöldin í framkvæmdaáætluninni, á fyrsta tímabilinu, voru tæpir 362 milljarðar þá gerir það um 72–73 milljarða á ári að meðaltali sem fara í samgöngumál á Íslandi. Setjum það í samhengi við fjárlög sem eru að verða tæpir 1.700 milljarðar og við erum að velta fyrir okkur einhverjum 100 milljónköllum hér og þar. Stundum hafa milljarðarnir ekki þvælst fyrir hæstv. ríkisstjórn til að eyða peningum en allt er þetta mjög erfitt þegar kemur að innviðauppbyggingu í landinu. Og þá langar mig að spyrja hv. þingmann: Telur hún ekki að það væri í rauninni auðsótt með ákveðinni hagræðingu og forgangsröðun í rekstri ríkisins að sækja mun meiri fjármuni til að bregðast við uppbyggingu samgöngumannvirkja á Íslandi?