157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:10]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég ætla bara að byrja á að segja að ég tek undir að það er auðvitað ekkert fast í hendi. Auðvitað þarf samgönguáætlun að byggja á fjárlögum hvers árs og það eru ýmis flækjustig, það tengist líka mögulegu hækkandi verði á olíu sem tengist malbiki, þannig að þetta er hreyfanlegt. Á sama tíma erum við að horfa á þessa gríðarlegu þörf. Ég tel að það sé mikilvægt fyrir okkur í samhengi við núverandi stöðu efnahagsmála, ég veit að auðvitað þarf þetta að skoðast í samhengi við verðbólguhorfur, að líta á fjárfestingu í þessum innviðum sem fjárfestingu til framtíðar. Ég held að ef við forgangsröðum ekki, sama hvort við erum að tala um hringtengingu á Austurlandi eða brýr á Suðausturlandi, sama hvað við erum að tala um, þá erum við að hægja á annarri verðmætasköpun í landinu. Þannig að jú, ég myndi vilja sjá skýrari forgangsröðun í samgöngumálum, djarfari áætlun, kannski meira í takt við það sem var boðað með nýrri ríkisstjórn, djarfari forgangsröðun í takt við þörfina sem við erum að horfa á. Ég veit að hv. þingmaður er mikið að hugsa um atvinnulíf og þróun þess. Ég var í Vestmannaeyjum í gær og heyrði því fleygt — ég á eftir að sannreyna það en ég set það fram hér í hálfkæringi sem dæmi — að fjárfestingin sem fyrirtækið Laxey hefur farið í eitt og sér nálgist verulega stóran hluta af borgarlínuverkefninu. Ég hugsaði bara: Hvernig getum við verið að ræða þessi mál fram og til baka á meðan heilt fyrirtæki nær árangri fyrir samfélagið á mun styttri tíma? Það er líka umhugsunarefni.