157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:13]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar fyrra svar. Það er svo sannarlega rétt hjá hv. þingmanni, það að fylgjast með því ævintýri sem er að eiga sér stað í Vestmannaeyjum — ég myndi halda að uppbyggingin hjá Laxey muni ábyggilega verða á milli 70–100 milljarðar í einu verkefni í þessu frábæra samfélagi sem Vestmannaeyjar eru. Hv. þingmaður er þingmaður Suðurkjördæmis og hafði forgöngu um að það var opinn fundur með samgönguráðherra með samgöngunefnd núna á dögunum. Þessir opnu fundir skila kannski takmörkuðu, þingmenn koma litlu að þannig séð. Eins og staðan er núna þá talar hæstv. ráðherra um að nýr Baldur eigi í rauninni að vera eins og Herjólfur og geta þá leyst Herjólf af ef Herjólfur bilar. Þetta er náttúrlega búið að vera ófremdarástand í Vestmannaeyjum. Þá langar mig að spyrja hv. þingmann, talandi um að forgangsraða fé, en nýr Baldur á ekki að koma fyrr en 2036, eftir tíu ár á nýr Baldur að koma, það eru engir peningar til í hann en hann á að koma eftir tíu ár samkvæmt áætlun: Er ekki ólíðandi að þetta sé staðan?