samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég held að ef við setjum þessar tímalínur í samhengi við bilanatíðnina sem hefur verið á nýjum Herjólfi þá sé það alveg ljóst, bara út frá öryggissjónarmiðum, að það þurfi að færa þessa fjárfestingu framar. Ég held að heilt yfir, af því að við erum að ræða samgönguáætlun, þurfi það að vera skýrara fyrir íbúa Vestmannaeyja hverjar aðgerðirnar eru. Það er jákvætt að í breytingartillögunni er verið að setja ekjubrúna framar en það hangir auðvitað saman við innviðafélagið. Ég vil sjá hvað varðar þetta nýja dýpkunarskip sem er búið að semja við, sem er mjög jákvætt, að það sé tryggt að við séum með fjármagn sem geti nýst til þess að dýpka höfnina á nýja vegu til að við lendum ekki í því ástandi sem hefur verið. Það er ekki bara fjárfesting í nýju skipi heldur þarf að tryggja (Forseti hringir.) að fjármagn sé til staðar svo við lendum ekki í sambærilegum áskorunum og Vestmannaeyingar þurftu að búa við í vetur.