samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég vil þakka fyrir umræðuna hér í dag og þakka framsögumanni og síðasta ræðumanni, Höllu Hrund Logadóttur, fyrir ágætisræðu þar sem hv. þingmaður sér ákveðinn kjarna í þessu máli. Þetta er ekki alveg mitt sérsvið en samgöngur eru samt eitthvað sem við öll, allir landsmenn, þurfum að nýta okkur og þær eru ýmiss konar.
Herra forseti. Samgönguáætlun er í raun framtíðarsýn þjóðarinnar á það hvernig við ætlum að tengja landið allt saman; skip, flug, farartæki á landi. Hún er ekki bara listi yfir vegi, hafnir og flugvelli, hún er forgangsröðun á því hvernig við eigum að verja hundruðum milljarða króna af skattfé landsmanna næstu árin. Hvernig tryggjum við að fólk, vörur og þjónusta komist á milli staða með öruggum, hagkvæmum og áreiðanlegum hætti? Það skiptir máli að áætlunin sé ekki aðeins metnaðarfull á pappír, eins og hefur komið hér fram í ræðum annarra hv. þingmanna, heldur að hún skili raunverulegum árangri, það sé einhver raunveruleiki í þessari áætlun. Ekki umbúðir og froða heldur raunveruleiki. Það skiptir öllu máli. Það er enginn vandi að birta áætlanir sem engin innstæða er fyrir.
Herra forseti. Við erum ekki að ræða hér einhverja smávægilega framkvæmdaáætlun heldur er um að ræða eina stærstu opinberu fjárfestingu sem Alþingi tekur afstöðu til. Á næstu fimm árum áætlunarinnar er gert ráð fyrir um 360 milljörðum til samgöngumála. Þegar horft er yfir allt 15 ára tímabilið er verið að marka stefnu um fjárfestingar sem nema yfir 1.000 milljörðum kr., þúsund 1.000 milljónir. Þetta er tala sem fæstir ná utan um því hún er það stór, 1.000 milljarðar. En áður en ég fer aðeins yfir áætlunina langar mig að setja þessa 1.000 milljarða í ákveðið annað samhengi sem að mínu mati fær allt of litla athygli, allt of litla, sérstaklega frá flokkum sem hafa hingað til gefið sig út fyrir það að vera flokkar sem styðja jöfnuð, jöfn tækifæri og sumir, því miður, jafna útkomu. Hér er ég að tala um málaflokkinn menntamál. En hvers vegna er ég að tala um menntamál í sambandi við samgönguáætlun?
Herra forseti. Í skýrslu OECD frá því síðasta sumar, 2025, kemur fram að staða menntakerfisins sé sú að ef ekki verður alger viðsnúningur, alger, er veruleg hætta á því að framleiðni Íslands minnki um a.m.k. 5%. Skiptir það einhverju máli? Hvað þýðir það fyrir Ísland ef framleiðni minnkar um 5%? Hvað þýðir það? Það þýðir að þjóðin verður a.m.k. af 250 milljörðum árlega. Það er einn fjórði af því sem samgönguáætlun mun kosta næstu 15 árin, árlega. Það fer ekki sami tími í þessar umræður um 250 milljarða árlega í önnur, að mínu mati, ómerkilegri mál á þinginu og þá er ég ekki að tala um samgönguáætlun. Þetta eru risatölur og ég er viss um það að 250 milljarðar árlega inn í samneysluna væru vel þegnir af hvaða ríkisstjórn sem er. En þá væri einhvern veginn skemmtilegra að þessi stjórnvöld sýndu þessu einhvern áhuga, hvað þá metnað. Menntakerfi, samgöngur, heilbrigðismál, löggæsla — öllum þessum þáttum veitir ekkert af meira fjármagni en þeir fá í dag og betri rekstri.
En aftur að samgönguáætlun, herra forseti. Það er ánægjulegt að sjá að í þessari áætlun er reynt að horfa til framtíðar með heildstæðum hætti en ég ítreka að það geta allir nú til dags slegið eitthvað inn í gervigreind og beðið um einhvers konar flugeldasýningu á pappír. En það skiptir máli að þetta sé gert og vonandi tekst ríkisstjórninni að ýta þessu almennilega úr vör og gera það sem stendur í áætluninni af því að það er margt ágætt í henni. Þarna er lögð áhersla á öryggi, sem skiptir miklu máli því að við viljum hafa samgöngur öruggar, áhersla á greiðar samgöngur, hagkvæmni, sjálfbæra og jákvæða byggðaþróun. Ég get alveg tekið undir jákvæða byggðaþróun því við viljum að landið sé í byggð og ég held að þetta séu markmið sem við flest getum sameinast um. En ég tel mikilvægt að við nálgumst þessa umræðu af raunsæi. Það að keyra upp væntingar kann aldrei góðri lukku að stýra. Þá verða vonbrigðin meiri. Við sjáum það bara í alls konar breytingum og einhvers konar tilfærslu innan áætlunarinnar. Þegar væntingar eru orðnar til og þær eru skemmdar þá veldur það oft svöðusári.
Við getum alltaf fundið verkefni sem okkur finnst eiga að ganga hraðar og framkvæmdir sem við teljum að séu vanfjármagnaðar eða áherslur sem við myndum raða öðruvísi. En við verðum að muna það að samgöngur á Íslandi eru gríðarlega umfangsmikið verkefni. Við búum í stóru landi hlutfallslega, strjálbýlu landi þar sem hver kílómetri í samgöngum leggst á miklu færri íbúa, þannig að eðli málsins samkvæmt verður kerfið okkar hlutfallslega dýrt. Þess vegna skiptir öllu máli að við nýtum fjármunina vel og förum í eins arðbærar framkvæmdir og hægt er, framkvæmdir sem skila þjóðinni arðsemi, því að ég held að það sé alveg ljóst að góðar samgöngur eru ekki bara kostnaður, alls ekki, heldur lífsgæði.
Það sem vakti athygli mína við að fara yfir þessa áætlun er að viðhald er sett í ákveðinn forgang, sem er jákvætt og ég held að það sé rétt því að ýmis samgöngumannvirki hefur skort viðhald, allt frá fjármálahruni a.m.k., þar sem var niðurskurður og menn reyndu að láta bílana ganga á bensíngufunum en á endanum duga þær ekki lengur. Ef við hugsum um heimili okkar, myndum setja þau í þetta samhengi, þá myndum við ekki byrja á að byggja einhverja viðbyggingu ef þakið lekur eða grunnurinn væri farinn að gefa sig. Við myndum laga það fyrst og svo byggjum við annað.
Herra forseti. Öryggi er sett á oddinn í þessari áætlun og er það gott að mínu mati því að öryggi er þáttur sem við verðum öll að geta treyst á í samgöngum, að vegir séu byggðir þannig að þeir séu eins öruggir og hægt er, einbreiðar brýr fari, beygjur séu rétt hannaðar þannig að menn fljóti ekki út úr beygjum heldur fari inn í þær og svo auðvitað að reyna að fækka þeim aðstæðum þar sem við erum ekki með vegrið á milli gagnstæðra akstursstefna því að það getur skapað mikla hættu. Það er metnaðarfullt að fækka dauðaslysum í umferðinni því að eitt slys snertir ansi marga.
Miðað við þau lífsgæði sem við búum við í dag þá er ákveðin krafa um að fjarskipti á vegum landsins séu þannig að sem flestir staðir séu í farsímasambandi. Það er líka öryggisatriði. Mér finnst ágætt að það sé rætt um þetta í þessari áætlun en ég ítreka að allt sem hér segir eru auðvitað bara orð á blaði. Við þurfum fjármagn, það þarf að fjármagna þetta. Það er ekki nóg að segja að við séum búin að tryggja fjármagn. Við höfum brennt okkur á því þegar þessi orðræða kemur, að menn séu búnir að tryggja eitthvað, en síðan kemur í ljós að við erum ekki búin að tryggja eitt né neitt.
Herra forseti. Þegar við tölum um samgönguáætlun megum við ekki láta eins og samgöngur séu bara línur á korti eða tölur í töflum eða falleg markmið hér í þingsal. Samgöngur eru raunverulegt líf fólks. Það sést eiginlega hvergi betur en í Vestmannaeyjum. Landeyjahöfn og ferjusamgöngur við Vestmannaeyjar eru hluti af grunnneti samgangna landsins. Það stendur í þessari áætlun að tengingin við Eyjar sé hluti af grunnneti samgangna landsins en það grunnnet virkar ekki sem grunnnet og við þau loforð sem hafa verið gefin hefur ekki verið staðið. Mér er minnisstætt að ekki fyrir alls löngu, 25. apríl í ár, þegar ég heimsótti Eyjar og hitti þar Eyjamenn óháð stjórnmálaflokkum — en það er nú bara þannig að flestir sem maður hittir í Eyjum eru Sjálfstæðismenn af því að þeir eru í meiri hluta þar og það er gleðilegt. Ég ferðast helst til þeirra bæjarfélaga. Þetta er nú sagt í hálfkæringi. (Gripið fram í.) En ég heyri hér úr sal að það sé staðreynd og ég verð að viðurkenna að það er staðreynd. En þegar maður hittir fólk í Vestmannaeyjum — sem er ein stærsta verstöð landsins, skapar gríðarlega miklar gjaldeyristekjur fyrir okkur Íslendinga og við þurfum gjaldeyri til að geta keypt erlendar vörur og þjónustu — þá eru skilaboðin skýr. Staðan í samgöngum er ekki bara slæm, hún er algjörlega óboðleg.
Þarna heyrði maður alls konar sögur. Foreldri sem þurfti að fara með barn til læknis í Reykjavík þurfti að gera ráð fyrir ellefu klukkustunda ferðalagi fram og til baka og jafnvel gistingu, þetta var í vetur, frá áramótum. Þessi óvissa með samgöngurnar skapar ekki bara eitthvert óhagræði heldur daglegt öryggisleysi. Ekkert samfélag ætti að þurfa að upplifa þetta. Þetta gerist á vakt þessarar ríkisstjórnar. Fyrirtækin geta ekki skipulagt starfsemi sína, skip landa síður afla í Vestmannaeyjum, enda samgöngur mjög ótryggar. Afurðir komast ekki á markað, vinna fer annað og fólkið í vinnslunum missir spón úr sínum aski. Þetta er hluti af samgöngum. Við skulum ekki gleyma því. Ferðaþjónustan í Eyjum er í sömu stöðu. Fjölskyldur hafa lagt allt undir til að byggja upp lítil fyrirtæki og lifa í stanslausri óvissu um það hvort það komi hópar eða ekki. Oftast var það þannig í vetur að engir hópar komu. Það þolir enginn atvinnurekstur þetta til lengdar. Afþreying, verslun og allt, þetta endar við eldhúsborð fólksins í Eyjum sem treysta á launagreiðslur um mánaðamót en þetta hefur brugðist. Ófyrirsjáanleiki Landeyjahafnar er orðinn eins og kyrkingaról á samfélaginu í Vestmannaeyjum.
Það sem er kannski verst er að það þarf ekki að koma neinum á óvart. Það sem olli mér ákveðnu hugarangri eftir þennan fund í Vestmannaeyjum — ég er að tala um þetta í samhengi við samgönguáætlun og hér eru þingmenn Suðurlands í salnum. En það sem ég velti fyrir mér er að þótt Vestmannaeyjar séu að ákveðnu leyti sér á parti er ástandið þar samt sem áður birtingarmynd þess þegar samgöngur eru ekki í lagi. Hvers vegna var ekki gert eitthvað almennilegt í þessum málum af ríkisstjórninni? Ég var þarna 24. apríl — og nú ætla ég ekki að tala um að ég sé einhvers konar frelsari í þessu máli, bara langt frá því. En ég er þingmaðurinn eins og við öll hér og ég held að við séum þingmenn í raun alls landsins hvert og eitt, þrátt fyrir að við séum kosin fyrir einhver kjördæmi.
Ég sendi tölvupóst á dýpkunarfyrirtækið Jan De Nul sem kemur til með að koma til Eyja og reyna að dýpka Landeyjahöfn, fyrirtæki sem gat haldið höfninni opinni áður. Við vissum að þetta fyrirtæki hafði getu til þess. Ég sendi tölvupóst á fyrirtækið og hringdi svo daginn eftir til Belgíu og ég var búinn að fá svör í sama hádegi. Þá vaknar spurning í mínum huga. Það er ekkert langt síðan ég var ekki hér á þingi og var bara hluti af þessum almenningi sem er í landinu sem skilur ekki alltaf hvernig þetta virkar allt saman á þinginu eða hjá ríkisstjórninni. Ég vil bara segja að samtal mitt við þetta fyrirtæki var mjög gott og ég fékk upplýsingar um það að ef ég hefði haft samband einhverjum vikum fyrr eða bara í janúar, febrúar þegar var ljóst hvernig ástandið væri á þessum stað, þá hefðu þeir getað komið og dýpkað höfnina og opnað fyrir eðlilegar samgöngur til Eyja og losað Eyjamenn úr þessari hengingaról. Ég hef ekki fengið svör við því hvers vegna það var ekki gert, engin svör. En þarna tók þetta mig, óbreyttan þingmann Reykjavíkur suður, tvo daga, einn tölvupóst og eitt símtal. Þeir voru tilbúnir til að koma en því miður var skipið þeirra farið í slipp. Hefðu þeir haft meiri tíma, hefði þetta verið gert fyrr, þá hefðu samgöngur í Eyjum ekki verið í þeim lamasessi sem þær voru meira og minna í allan vetur. Þetta þurfa meirihlutaþingmenn að svara fyrir. Það er starf okkar þingmanna að svara fyrir.
Ég sé að tíminn er að verða búinn hjá mér og ég er ekki búinn með einn fimmta af þessari ræðu. En vegna þessa alls er ákveðið óöryggi hjá mér varðandi þessa samgönguáætlun. Menn skrifa og tala en hvað gera menn? Af verkum sínum skulu þeir vera dæmdir. Menn skrifa sína sögu sjálfir og ég vona að sagan í kringum þessa samgönguáætlun verði að einhverju leyti betri og sannari heldur en sú saga sem hefur verið skrifuð í kringum Vestmannaeyjar í tíð þessarar ríkisstjórnar. (Forseti hringir.) Ég sé að tíminn er búinn, frú forseti, og ég bið um að ég verði settur aftur á mælendaskrá til að halda áfram með mína ræðu.