157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:36]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir prýðisgóða ræðu. Hann fór um víðan völl og náði m.a. að tengja samgönguáætlun menntamálum, sem mér fannst vel gert og í rauninni áhugaverð tenging. Hann talar um að við eigum ekki að vera með umbúðir og froðu og ég er sammála. Við þurfum að vera í raunveruleikanum og við eigum að nýta fjármuni vel, ég er fullkomlega sammála honum um það. Nú veit ég ekki hvort þingmaðurinn hefur lesið nefndarálitið frá meiri hlutanum í samgönguáætlun og hann kom ekkert inn á innviðafélagið en ég veit að hann hefur víðtæka þekkingu. Mig langar að spyrja hann aðeins tengt þeim orðum hæstv. innviðaráðherra þegar hann kynnir samgönguáætlun til leiks að hann bindi miklar vonir við innviðafélagið. Að sjálfsögðu gerum við það öll. Ég ætla ekkert að draga undan í því að ég bind miklar vonir við þetta innviðafélag og tel afskaplega mikilvægt að vel takist til með uppsetningu þess. Mér virðist sem hæstv. ráðherra hafi jafnvel gert sér vonir um að það væri hægt að setja alls konar hluti inn í innviðafélagið og hann jafnvel haft hönd í bagga með hvað færi þar inn. En varðandi jarðgangaáætlunina, þessa forgangsröðun jarðganga sem hann tiltekur í áætluninni: Telur þingmaðurinn að það verði t.d. hægt að setja þessi jarðgöng inn í þetta innviðafélag? Telur hann að þessi jarðgöng séu það arðbær að það verði hægt að setja þau inn í innviðafélagið?