157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:41]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir fínasta svar en mig langar aðeins að halda áfram á þessari braut. Nú hef ég ekki upplýsingar um hvaða mannvirki t.d. eiga að renna inn í þetta innviðafélag og ég veit svo sem ekkert hvort þingmaðurinn hefur heyrt eitthvað í þá veru hvaða mannvirki ættu að fara þarna undir. En mig langar að spyrja þingmanninn, vegna þess að það hefur alla vega verið umræða hér og þar um það hvort ætti að hefja gjaldtöku aftur af mannvirkjum sem nú þegar hafa verið greidd upp, eins og t.d. Hvalfjarðargöngin. Þau voru fjármögnuð með gjaldtöku. Nú er búið að greiða þau upp en það heyrast raddir um hvort það ætti ekki að hefja gjaldtöku þar aftur til að fjármagna aðrar framkvæmdir. Mér finnst það rangt. Ég get ekki kvittað undir slíkt þannig að mig langar að heyra hvað þingmanninum finnst um það.