samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir gott seinna andsvar og fyrir andsvar án froðu og umbúða, sem er mjög gott. Mér finnst það fínt. Hér er spurt hvort það ætti að hefja gjaldtöku aftur í Hvalfjarðargöngunum. Sú gjaldtaka gekk vel vegna þess að þau göng eru gríðarlega mikið notuð eða verulega mikið notuð og gjaldtakan var þannig að ef maður keypti áskrift var þetta ekki það dýrt. Almennt er ég frekar hlynntur því að menn borgi fyrir það sem þeir nota ef við getum komið einhverju í gang hratt og örugglega með þeim hætti. En hvort það ætti að borga aftur í Hvalfjarðargöngin, það snertir einhverja taug í manni og maður finnur að það er ekki sanngjarnt að það sé lagður aftur aukaskattur á íbúa nærsamfélagsins; Vesturland, Akranes, Borgarnes, Snæfellsnes og á Reykvíkinga sem eru kannski að sækja vinnu (Forseti hringir.) þarna aðeins lengra. Ég ætla ekki að svara af eða á með það en mér finnst ólíklegt að ég myndi greiða því atkvæði að það ætti að fara aftur í gjaldtöku í göngunum.