157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:44]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða yfirferð og ræðu. Ég ætla að byrja á öðru atriði en ég hafði hugsað mér að spyrja um í fyrra andsvari. Það grundvallast á samtali hv. þingmanns við hv. 4. þm. Norðvest., Ingibjörgu Davíðsdóttur, hér rétt áðan um þetta atriði, að þeir borgi sem noti, sem er auðvitað áhugaverð pæling en mér hefur oft þótt svona býsna þröngt miðað að samgönguframkvæmdum einum og sér í þeirri hugmynd. Ef við lítum á innviðauppbyggingu, samgönguframkvæmdirnar, vegina, brýrnar, göngin, flugvellina, hafnirnar og það allt saman sem innviði, sem þeir eru augljóslega eru, sem þjóni allri þjóðinni þá eru líka sjónarmið sem koma upp varðandi það að þeir sem nota kerfið lítið en munu á einhverjum tímapunkti þurfa að nota það bara liggjandi í sjúkrabíl eða með einhverjum hætti — þarf ekki að vera einhver aðgangsgreiðsla fyrir það að hafa aðgengi að því öryggi sem felst í góðu samgöngukerfi? Því að um leið og sagt er: þeir sem borga sem nota, þá hefur mér þótt hæpin sú nálgun að það sé línulegt út í hið óendanlega. Þeir sem stunda bíllausan lífsstíl en þurfa kannski að nota vegakerfið, fyrir utan reiðhjólastígana sem ökumenn borga líka, en þurfa að nota vegakerfið — það er ekki alveg augljóst að það sé sanngjarnt að kílómetri nr. 40.000 kosti notandann það sama og kílómetrarnir númer 10 eða 20 kosta þann sem stundar bíllausan lífsstíl. Hvort hv. þingmaður hafi skoðun á þessari vangaveltu.