samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir skemmtilega vangaveltu og pælingu í þessu. Ég hef ekki verið almennt mjög mikið að pæla í þessu en mín svona hægri sýn er almennt þessi að menn borgi fyrir það sem þeir nota. Sú sýn er oft pólitískt erfið, að ætla að fara að skattleggja einhverja með einhvers konar borgunum ef þú notar eitthvað. Það er erfiðara að gera það heldur en að segja að ríkissjóður borgi þetta út í einhverja óendanlega framtíð. Þannig að það er oft pólitískt erfitt að segja það sem ég vil meina, að þeir borgi sem noti. Mér finnst þessi punktur hjá hv. þingmanni varðandi það að hafa aðganginn, hafa öryggið, að geta nýtt sér rafmagnshlaupahjólið, þú brunar eftir götunum eða gangstéttum og öðru slíku — það er samt kannski mögulega ofboðslega lítill partur. En ef það er hægt að einhvern veginn nálgast það með sanngjörnum hætti að það taki meira og minna allir þátt með einhverjum hætti þá þætti mér það ekkert óeðlilegt, alls ekki. Þannig að þessi lýsing hér hjá þingmanninum — sjálfur vil ég nú eiginlega ekki úttala mig um mál fyrr en ég hef fengið einhvern tíma til að láta undirmeðvitundina vinna með það og ég átta mig á því með sjálfum mér hvert nákvæmlega rétta svarið er fyrir mig og samfélagið en þetta er góð pæling. Ég held að svona greiðslur, að þeir borgi sem nota, geti keyrt málin hratt áfram og minnki þessa umbúðamennsku og prjálið í kringum það að leggja fram einhvern texta sem er í raun mest froða og umbúðir. En það er alveg rétt (Forseti hringir.) að samgöngur, bæði með flugi, skipi og á landi, (Forseti hringir.) við notum þær meira og minna einhvern tímann öll. Ég held að það sé alveg — (Forseti hringir.) afsakið, frú forseti. Ég get kannski svarað í seinna andsvari.
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn um að virða ræðutíma.)