samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það leiddi dálítið yfir í það sem ég ætlaði að spyrja um upphaflega sem snýr að, svona í ljósi fyrri starfa hv. þingmanns, mikilvægi þess að stýra væntingunum með skynsamlegum hætti. Ég þekki þetta verkfæri sem samgönguáætlun er ágætlega, bæði eftir störf hér í þinginu og svo sem úr fyrri störfum sömuleiðis. Mér hefur þótt þessi bábilja um fullfjármagnaða samgönguáætlun sæta furðu í ljósi þess með hversu skýrum hætti hefur verið farið yfir það að hún er fjarri því að vera fullfjármögnuð í neinu samhengi. Það er enn þá inni í nefnd mál um innviðafélag og allsendis óvíst um afdrif þess, mál sem er lykilatriði í því að koma öllum þessum háleitu hugmyndum á rekspöl.
Mig langar til að spyrja (Forseti hringir.) hv. þingmann út í afstöðu hans til væntingastjórnunar í tengslum við málið eins og það liggur fyrir af því að við sáum (Forseti hringir.) þetta svo skýrt í samgönguáætlun sem var samþykkt hér 2016, minnir mig, þar sem allt var uppi í skýjunum, (Forseti hringir.) fjármögnun mjög bágborin, hvers lags neikvæð áhrif það hefur á sveitarfélög landið um kring sem (Forseti hringir.) hafa byggt upp væntingar á grundvelli þess sem hér er lagt fram.
(Forseti (EÁs): Forseti vill ítreka að ræðutíminn er ein mínúta í síðara andsvari. (BergÓ: Ég biðst forláts.))