157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:51]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar sitt sem var gott. Ég get bara tekið undir að það hefur vakið furðu mína þegar menn nota svona sterk orð eins og „fullfjármögnuð samgönguáætlun“, mér finnst það eiginlega lýsa fullkomnu ábyrgðarleysi. Að lyfta væntingunum upp í skýin er eiginlega ávísun á einhvers konar niðurbrot fyrir stóran hluta samfélagsins sem gerir ráð fyrir því — segjum bara norðanvert Snæfellsnes sem er allt í malarvegum, að keyra upp væntingar þar. Á að malbika frá Stykkishólmi yfir í Búðardal? Á að brúa Álftafjörðinn? Þetta gæti komið fram og það eru væntingar um að eitthvað verði gert varðandi norðanvert nesið í dag. Ef það gerist síðan ekki — það sem gerist þá er að það verður auðvitað bara hrun á trausti í stjórnmálunum og traust og trúverðugleiki Alþingis bíður hnekki. (Forseti hringir.) Það er ekki gott fyrir einn né neinn, ekki stjórn og ekki stjórnarandstöðu.