samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir yfirferð á þessu mikilvæga máli og tek undir það, sem ég kom sömuleiðis inn á í ræðu minni, hversu mikilvægar fjárfestingar eru fyrir landið í heild, fyrir atvinnuvegina, fyrir öryggi íbúa. Það hvílir einhvern veginn allt á því að samgönguáætlun virki.
Mig langar að koma aðeins inn á eitt af því að ég veit að hv. þingmaður er þingmaður í Reykjavík, þ.e. samspilið á milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar. Nú er flokkur hv. þingmanns nýtekinn við leiðtogasætinu í borginni og þar er verið að horfa á mögulega endurskoðun alla vega hluta borgarlínu og uppbyggingu innviða í höfuðborginni. Ef hv. þingmaður horfir á þessa samgönguáætlun í samhengi við það, hvaða sýn hefur hv. þingmaður? Finnst hv. þingmanni vanta eitthvað upp á? Eru einhverjar áhyggjur eða tækifæri sem hv. þingmaður sér í því samhengi? Ég spyr vegna þess að ég verð að setja það í samhengi við þær áskoranir sem maður upplifir á landsbyggðinni, sem eru oft á tíðum hreint og beint lífshættulegar eða mjög einangrandi, eins og við komum inn á varðandi Vestmannaeyjar, þá finnst manni það að vera fastur í Ártúnsbrekkunni, sem ég er nú nánast daglega, vera eitthvað svo léttvægt. Þannig að ég laumast kannski líka til að spyrja hv. þingmann hvort honum finnist vera nægilega mikið fjárfest í landsbyggðinni í þessari samgönguáætlun eins og hún liggur fyrir.