157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:57]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína yfirferð. Ég ætla að leyfa mér að taka undir mikilvægi þess, þó að ég hafi spurt á þessa vegu, að við séum að horfa á þessar fjárfestingar í samhengi við hagsmuni landsins alls, að landið allt rísi. Stundum eru það þær fjárfestingar sem eru minnst arðbærar sem skapa mestu tækifærin fyrir svæði sem hafa kannski ekki þrifist. Við vitum að innviðafjárfestingin er há t.d. á Vestfjörðum, á Suðausturlandi, Austfjörðum og víða. Þar losna kraftar úr læðingi með því að setja fjármagn í samgöngur. Af því að við ræddum ekki nægilega mikið — og kannski er það tækifæri fyrir næstu umræðu nefndarinnar um samgönguáætlun bara að hugsa um hluti eins og fæðuöryggi og samspil við samgönguáætlun. Við verðum að tala um alls konar ólíka þætti; (Forseti hringir.) öryggi bænda á vegum, ferðir með vörur og framleiðslu (Forseti hringir.) á milli landshluta. Þetta er allt eitthvað sem hangir saman (Forseti hringir.) við hagsmuni Reykvíkinga sömuleiðis.