samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fínt andsvar. Þingmaðurinn nefnir hér fæðuöryggi og það er líka eitthvað sem hefur aðeins breyst í mínum huga almennt þegar við höfum lent í þessum krísum, bæði í fjármálahruninu og svo Covid-19 faraldrinum. Þá er það bara þannig að það er enginn annars bróðir í leik. Í fjármálahruninu voru engir sem vildu hjálpa okkur, rétta okkur hjálparhönd, nema Færeyjar og Pólland, að mig minnir. Rússar voru eitthvað að daðra við það en okkar vinaþjóðir og nágrannaþjóðir, fyrir utan Færeyinga, vildu það ekki. Það sama var í Covid-19 faraldrinum, þá var bara hvert landið á fætur öðru í Evrópu sem lokaði bara og yrti ekki á aðra. Þannig að við þurfum þetta fæðuöryggi en til að það virki þá þurfum við, þannig að ég ítreki það, jarðefnaeldsneyti. Og til að það gangi upp þurfum við að fara að verða olíuþjóð, bora á Drekasvæðinu. Þegar það er komið þá erum við komin með allar orkumyndir (Forseti hringir.) og við getum verið með fullt fæðuöryggi og við gætum malbikað alla vegi heim að hverjum einasta sveitabæ á landinu.