157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:21]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil kannski fyrst nefna það sem nauðsynlegan þátt í svona veggjaldahugmyndunum að við þurfum auðvitað að fella niður gjöld eins og kílómetragjald og við þurfum líka að lækka vörugjöld á bíla, almenna heimilisbílinn. Það er hluti af okkar hugmyndum í þessu. En mér líst vel á innviðafélag. Það er í raun og veru hugmyndin sem ég hef talað fyrir í tæp tíu ár, það er einmitt innviðafélag. Ég tel að það geti verið félag sem þarf bara að vera á miklu stærri skala en það sem verið er að leggja til í þessari þingsályktunartillögu núna. Það þarf að hugsa miklu stærra í þessu ef við ætlum að ná árangri. Við munum ekki ná í skottið á okkur nema við lítum á þetta sem heildstætt verkefni, samgöngukerfið í landinu. Innviðafélagið, eins og ég skil þetta, er hugsað til að halda utan um ákveðin verkefni og láta þau fjármagna sig. Við munum aldrei fjármagna göng úti á landi af veggjöldum einum saman. Þau munu ekki gefa nema bara brot af kostnaðinum við að byggja þau og hvað þá að reka þau, þannig að það þarf að hugsa þetta á miklu stærri skala. Ég ræddi þetta við hæstv. fjármálaráðherra fyrir löngu, ég ræddi þetta við hann þegar ég var með þessar hugmyndir á sínum tíma og honum leist mjög vel á þetta þá eins og öðrum hagfræðingum sem ég ræddi við. En það þarf að stíga skrefið af fullum þunga alla leið. Ég bauð hæstv. fjármálaráðherra það þegar þetta þing fór að koma saman eftir síðustu kosningar að ég væri tilbúinn að taka þátt í þessari vinnu með þeim. Ég held að það sé mikilvægt að við reynum að setja saman þverpólitískan hóp til að nálgast lausnirnar. Við eigum að taka þetta upp úr hjólförunum, taka þetta upp úr þessu kjördæmapoti sem einkennir alltaf umræðuna og að hver tali inn í eyru á sínu svæði og hefja okkur yfir þá umræðu og ná einhvers konar þjóðarsátt (Forseti hringir.) um það hvernig við ætlum að gera það vegna þess að það er fátt mikilvægara í íslensku samfélagi en að byggja upp almennilega innviði í samgöngum.