samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Já, það er ánægjulegt að heyra að hv. þingmanni líst vel á innviðafélagið. Ég heyri að það er verið að hugsa mjög stórt í þessu samhengi og að við munum geta séð bara á næsta áratug gríðarstórar framkvæmdir verða að veruleika, sem hjálpar til við að losa um fjármagn þannig að það sé líka hægt að fara í þessi verkefni úti á landi sem eru minna arðbær. Ég bind rosalega miklar vonir við innviðafélagið og að hér séu að eiga sér stað ákveðin kaflaskil. Það er gott að heyra að hv. þingmaður er fylgjandi þessari hugmynd líka.
Mig langar aðeins að heyra sjónarmiðin varðandi það að við þurfum þá á móti að taka önnur gjöld sem eru líka að renna í vegakerfið, eins og kílómetragjaldið og annað. Þá veltir maður fyrir sér: Ef hugmyndafræðin er sú að við ættum að fara að setja á vegggjöld á sama tíma og að fella niður önnur gjöld, hver verður þá nettóútkoman? Það væri gott að heyra þingmanninn fara aðeins betur yfir þessa sýn.