157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:25]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, það er nauðsynlegt til að sætta sjónarmið að fella niður gjöld. Við erum með allt of háa gjaldtöku í dag og það er alveg makalaust hverju hefur verið lofað hér, hverri gjaldtökunni sem sett er á á fætur annarri, hvort sem það er kílómetragjaldið, veiðigjöldin, kolefnisgjöldin, allt hefur þetta verið réttlætt með því að það eigi að fara heim í hérað. Austfirðingar áttu bara að fá veiðigjöldin á Austfjörðum, í samgöngumál hjá sér. Svona var reynt að selja fólki þetta. Þetta er ekkert þannig.

Þarna erum við að tala um grundvallarbreytingar á gjaldtöku af bifreiðum og notkun þeirra. Fljótlegur útreikningur myndi segja okkur það að einskiptisnotendur með þessari leið sem ég er að tala fyrir myndu greiða um 40% af uppbyggingu vegakerfisins. Þetta fólk, ferðamennirnir okkar, er vant því að greiða þetta heima hjá sér. Það þekkir þetta. Líst mér vel á innviðafélag? Já, ég sagði að mér litist vel á innviðafélag. Mér líst hins vegar ekkert á þessa útfærslu sem boðuð er og enn og aftur gefur það einhverjar mjög óljósar væntingar inn í framtíðina og menn voga sér á grundvelli þess að segja: Já, við erum með fullfjármagnaða áætlun af því að við ætlum mögulega gera þetta einhvern veginn svona. Í eitt og hálft ár er þessi ríkisstjórn búin að vera að störfum. Er þetta allur afraksturinn af því? Ég var 10–11 mánuði í samgönguráðuneytinu og ég var kominn með miklu dýpri og betri hugmyndir og yfirsýn yfir þennan málaflokk. Það þarf bara að ganga í það mál að koma sér saman um hvaða leið við ætlum að fara. Þetta er allt of óútfært og óburðugt, alveg eins og var hér á síðustu árum þar sem menn voru að taka Hornafjarðarfljótið og Ölfusárbrúna og setja þessi verkefni einhvern veginn sérstaklega inn í gjaldtöku. Ætluðu að hengja þetta á verktakana, að þeir myndu sjá um að fjármagna þetta og innheimta síðan. Það borgar sig ekki fyrir svona eitt og eitt verkefni að Pétur sé að (Forseti hringir.) innheimta þarna og Palli hinum megin og svo Sigríður einhvers staðar á öðru svæði. (Forseti hringir.) Nei, það gengur ekki upp. Þú þarft að vera með þetta í einu heildstæðu stóru kerfi vegna þess að (Forseti hringir.) við erum það fámenn að við verðum að koma okkur saman um það (Forseti hringir.) að þetta er vandamál sem við þurfum öll að koma að að leysa.