samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég vildi fyrst og fremst og bara í allri einlægni spyrja um afstöðu Sjálfstæðisflokksins til innviðafélagsins. Hér hafa fyrr í dag einstakir þingmenn lýst yfir nokkrum stuðningi við innviðafélag sem kæmi þá til viðbótar, vissulega með fjármögnun af veggjöldum, í stór afmörkuð verkefni sem kallað er eftir en rúmast ekki innan núverandi ramma samgönguáætlunar. Þó er þessi rammi mun metnaðarfyllri en áður og ef heyrn mín brást mér ekki þá heyrði ég fjölmargar ábendingar og tillögur formanns Sjálfstæðisflokksins um það sem mætti meira gera og betur fara og í raun ákall um fjölmörg mikilvæg útgjöld sem gæti einmitt skapast svigrúm fyrir með innviðafélagi. Það er hugsunin. Þau verkefni sem fara þar inn skapi svigrúm í samgönguáætlun. Mín upplifun er að það sé þverpólitískt ákall eftir meiri fjármunum þarna inn. Sú leið sem fyrri ríkisstjórn fór með samvinnufélag er byggð á sömu veggjaldahugsun en hefur ekki virkað eins vel í framkvæmd og nú er hugsunin sú að fara í þetta af auknum krafti en markvissar á þann hátt sem nágrannalöndin hafa gert með innviðafélögum eins og í Danmörku og Færeyjum, svo dæmi séu tekin. Og það væri satt best að segja mjög æskilegt og gott, vegna þess að þetta er stefnumörkun til lengri tíma, að þingheimur gæti sem mest og best sameinast um þessa hugmynd og þessa útfærslu.