samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurningu sem til mín er beint varðandi innviðafélag og hv. þingmaður kallar eftir afstöðu Sjálfstæðisflokksins. Ég vil fá að lesa aftur það sem ég sagði í ræðu minni áðan, með leyfi forseta:
„Ég vil hafa það alveg á hreinu að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki andvígur þeirri hugsun sem getur legið að baki innviðafélagi. Það getur verið skynsamlegt að flýta stórum og arðbærum framkvæmdum með nýjum fjármögnunarleiðum þar sem það á við. Við þekkjum það“ — og ég nefndi áðan Hvalfjarðargöngin.
Aftur á móti höfum við Sjálfstæðismenn áhyggjur af því að stór hluti þeirra stóru framkvæmda sem þessi áætlun reiðir sig á, á að fara inn í svokallað innviðafélag. Það félag er ekki til. Það er enn í meðförum þingsins. Ég verð að segja, af því að við erum að ræða samgönguáætlun og ég heyri ekki betur en að hv. þingmaður vilji tengja saman innviðafélagið og þessa samgönguáætlun og það verði svona órofa band þar á milli, að það er auðvitað bagalegt að við séum farin að ræða samgönguáætlun og innviðafélagið svokallaða en það mál er ekki komið út úr nefnd og er enn í meðförum þingsins. Við vitum ekki nákvæmlega hvernig lagaumgjörðin verður. Við vitum ekki hvaða eignir eiga að fara þarna inn eða hvernig gjaldtöku verður háttað þannig að allt samtal um samgönguáætlun — ég tel að það verði að vera í órofa samhengi við innviðafélagið þar sem ríkisstjórnin leggur áherslu á það. En hér nefnir líka hv. þingmaður samvinnufélag, að það hafi ekki virkað í framkvæmd. (Forseti hringir.) Það er rétt vegna þess að það var heldur aldrei stofnað til þess. Það var rætt hér og fyrrum þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Haraldur Benediktsson, (Forseti hringir.) lagði það mál til og stóð þar í stafni. (Forseti hringir.) En ég tek alveg undir með hv. þingmanni að stefnumörkun til framtíðar er nauðsynleg.
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutíma sem er tvær mínútur nú undir þessum lið.)