157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:53]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þessi svör og í raun góð orð í garð hugmyndarinnar. Það er auðvitað þannig að útfærslan getur verið viðkvæm, pólitískt viðkvæm. Það er freistandi að styðja framkvæmdirnar en ekki fjármögnunina. Það er freistandi að styðja hugmyndina en ekki útfærsluna. En ef við ætlum öll að vera þar þá gerist harla lítið og við höfum því miður býsna langa reynslu af því. Ég var raunar að vísa til laga um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir og nokkur slík hafa farið af stað en það hefur kannski ekki þróast eins og skyldi. Hornafjarðarfljót er eitt. Ölfusárbrú er annað. Þar getur maður séð ákveðna galla. Það er í raun verktakafjármögnun að segja má, sem er dýr og felur í sér umtalsverðan fjármagnskostnað. Hugsunin með innviðafélaginu er að fjármagnskostnaðurinn verði lægri, ábyrgðin skýrari og þetta verði í raun, við getum kallað það snjóbolta sem verður þróttmeiri eftir því sem betur gengur. Þetta sjáum við bæði í Færeyjum og sérstaklega kannski í Danmörku þar sem þessi félög eru að takast á hendur mjög metnaðarfull verkefni. En margt sem hefur verið í umræðunni hér, jafnvel áratugum saman eins og Sundabraut, kallar á stóra hugsun. Ef við myndum máta verkefni eins og Sundabraut við samgönguáætlun þá myndi það ryðja framkvæmdafé í heild sinni til hliðar í fjölmörg ár.

Málið er raunar komið út úr nefnd, það er komið álit meiri hlutans þannig að ég vona að við eigum gott samtal um innviðafélag hér á næstu dögum og vonandi ljúkum við þeirri umfjöllun í eins breiðri sátt og hægt er.