157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:55]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir seinna andsvar og tek undir það að málið er sannarlega komið út úr nefnd, ég held að ég hafi sagt annað hér áðan. Ég vil líka taka undir með hv. þingmanni að útfærslan getur verið viðkvæm. Það þekkjum við. Það þekki ég persónulega þar sem ég bý í mínum heimabæ, Hveragerði, og hef keyrt til höfuðborgarinnar á hverjum degi í 20 ár. Nágrannasveitarfélög höfuðborgarinnar hafa laðað til sín á síðustu árum sérstaklega ungt fólk, ungt fjölskyldufólk sem hefur átt erfitt með að stækka við sig á höfuðborgarsvæðinu og það hefur kosið búsetu í nágrannasveitarfélögum og reiðir sig þar af leiðandi á samgöngur í öllu sínu daglega lífi. Það hafa margsinnis komið upp hugmyndir um að setja t.d. veggjöld á allar stofnæðar út af höfuðborgarsvæðinu. Ég get ekki betur séð en að því sé enn þá ósvarað hvort sú heimild liggi fyrir í innviðafélaginu, þ.e. að bæta við fullbúnum samgöngumannvirkjum eins og t.d. Reykjanesbraut, Suðurlandsvegi eða Vesturlandsvegi og hefja gjaldtöku á vegum sem þegar hafa verið byggðir. Þessi umræða er ein af þeim sem á eftir að taka, um útfærslur sem geta verið viðkvæmar eins og hv. þingmaður nefndi hér áðan. Ég vil líka — ég á reyndar bara tvær sekúndur eftir þannig að ég fæ kannski að skjóta því inn í hér á eftir.