samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir sitt erindi. Hún vék svo sem að allmörgum þáttum, fór ansi vítt, þar á meðal voru þættir er vörðuðu ferðaþjónustuna og eðli málsins samkvæmt vegina. Ég kem kannski aðeins annars staðar frá en hv. þm. Dagur B. Eggertsson en mig langar að nefna við hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur hvort hún hafi kynnt sér umsögn Landssambands hestamannafélaga. Þar eru dálítið áhugaverðar upplýsingar, með leyfi forseta:
„Hér er í raun um lækkun á fjárframlagi til reiðvega að ræða frá því sem það hefur verið á undanförnum árum. Sem dæmi þá var á árinu 2009 framlag til reiðvega af samgönguáætlun 70 millj. kr. og hafði þá að mestu fylgt verðlagsþróun áranna 2000–2009. Framreiknað með verðlagsreiknivél Hagstofu Íslands væri sú upphæð tæpar 140 millj. kr. að núvirði.“
Síðan er rakið í þessari umsögn að það hafi verið búið að gera áætlanir um stórfellt átak í þessu og fara upp í 300 millj. kr. Ástæðan fyrir því að mig langar að spyrja hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur út í þetta er sú að hún kemur úr Suðurkjördæmi og það er eitt af þeim svæðum á landinu þar sem hestatengd ferðaþjónusta er líklega hvað stærst, að öðrum kjördæmum ólöstuðum. Þess vegna leikur mér forvitni á að vita hvað hv. þingmanni þykir um það að hér sé atvinnuvegur undir, sem er, fyrir utan alla hobbímennsku og íþróttamennsku, líka stór atvinnuvegur, stór atvinnuvegur í hennar kjördæmi ásamt öðrum kjördæmum að verða fyrir verulegri skerðingu.