157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:01]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir prýðilegt svar og ég tek undir með hv. þingmanni að þetta skiptir máli ekki bara vegna íþróttarinnar eða hobbímennskunnar eða atvinnumennskunnar og þeirra sem eru í faginu heldur er þetta einnig risastórt öryggismál. Það vita, hygg ég, flestir, þó að þeir séu jafnvel ekki hestamenn að umferð ríðandi hópa, ég tala nú ekki um stærri hópa, á litla samlegð með annarri umferð. En til að uppfæra kannski og setja hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur aðeins betur inn í málið þá var í niðurstöðum starfshóps sem skilaði af sér í maí 2023 lagt til að átak yrði gert í reiðvegamálum og reiðvegafé aukið verulega frá því sem hefur verið undanfarin ár eða í 300 millj. kr. árlegt framlag. Það er allnokkur munur á því eða 70 milljónum. Þetta skiptir að sjálfsögðu öll kjördæmi máli þótt ég hafi nýtt mér staðsetningu hv. þingmanns og heimilisfesti til að nálgast umræðuefnið.

Það kemur fram í umsögn landssambandsins og er fullyrt þar, með leyfi forseta, að sýnt hafi verið fram á og færð rök fyrir því hve háum fjárhæðum hestamennska og hestatengd ferðaþjónusta skila þjóðarbúinu í tekjur á ársgrundvelli, tekjum sem hlaupa á tugum milljarða á ári hverju. Hér erum við hv. þingmaður að fjalla um þessa samgönguáætlun og erum kannski að taka einhvern slag fyrir þennan atvinnuveg og þessa íþróttagrein og þessa hobbímennsku upp á kannski 100 milljónir til eða frá. Þær skipta sköpum fyrir fagið en eru nú varla dropi í hafið í heildarsamhenginu. Ég velti því fyrir mér og spyr hv. þingmann hvort hún geti tekið undir með mér um það að miðað við hversu mikinn gjaldeyri þessi grein er að skaffa þá eigi hún skilið uppfærslu í þessari samgönguáætlun.