157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:04]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir seinna andsvar sitt. Ég hef lúmskt gaman af því, eins og ég sagði áðan, að ég sé farin að tjá mig mikið um hestamennsku en ég veit að hv. þingmaður er mikill hestamaður og maður horfir á hann með hestinn í barminum sem er einkennismerki hans flokks. Ég vil taka undir það að miðað við þessar stóru fjárhæðir í samgönguáætlun þá eru þessar fjárhæðir í reiðvegi harla litlar í öllu samhengi. Við eigum fjóra þjóðvegi yfir Hellisheiði. Þrír þeirra eru gamlir og eru markaðir fyrst og síðast af hestaumferð í gegnum aldirnar þar sem hesturinn hefur verið þarfasti þjónninn hér á Íslandi og þar af leiðandi voru reiðvegir þess tíma þjóðleiðir. Við getum haldið áfram og mér þætti spennandi að við myndum eiga þessar gömlu þjóðleiðir sem reiðvegi til framtíðar og við eigum að horfa í þá átt að fólk geti farið ríðandi hér hringinn á gömlu reiðvegunum. Í þá tíma þurfti nú líka að sundríða stórfljótin.

Ég vil fá að nefna það, ég veit að hv. þingmaður getur ekki komið hér aftur og átt orðaskipti við mig, en við sjáum það t.d. bara í fjármálaáætlun að ríkisstjórnin ætlar að skera niður líka þá litlu peninga sem ríkið hefur sett í markaðssetningu á íslenska hestinum erlendis. Ég ætla að nota tækifærið og hvetja ríkisstjórnina til að endurskoða það vegna þess að þetta er mikilvæg atvinnugrein. Þetta skiptir máli. (Forseti hringir.) Þetta skiptir ekki bara máli í sölu gæðinga eða útflutningi hrossa heldur er þetta hluti af þeirri heildarmynd sem við viljum að sé á Íslandi í ferðaþjónustu.