157. löggjafarþing — 115. fundur,  3. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:17]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Helga Pálmasyni fyrir hans góðu ræðu. Mig langar að ræða sjóvarnir við hv. þingmann sem hann kom inn á. Samtals er verið að setja 807 millj. kr. í sjóvarnir á framkvæmdaáætlun fyrstu fimm árin. Ef mig misminnir ekki þyrfti þessi upphæð að vera 2,5 milljarðar kr. ef vel á að vera til að við getum brugðist við, eins og hv. þingmaður nefndi, brýnni þörf á því að verja íbúðarbyggð, mannvirki, menningarverðmæti og menningarminjar sem eru í mikilli hættu.

Mig langar að fá hv. þingmann til að velta því fyrir sér hvort sjóvarnir eigi heima í samgönguáætlun. Ættu þær frekar heima í sérstakri áætlun sem er fjármögnuð sérstaklega?