157. löggjafarþing — 115. fundur, 3. júní 2026.
samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
322. mál
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni Jens Garðari Helgasyni fyrir andsvarið. Ég held að þetta þurfi að skoða. Það kemur fram í nefndarálitinu og við höfum talað um það. Verðum við þá ekki að stofna nýjan náttúruhamfarasjóð og taka þetta úr samgönguáætlun? Þetta eru þannig verkefni. Með því að setja þau inn í samgönguáætlun virðast þau ekki fá nægilega mikla athygli í því öllu að mínu mati. Ég styð þetta heils hugar. Við höfum talað um það að þetta er eitthvað sem þyrfti að skoða.