samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þekki það sjálfur af eigin raun að hafa verið formaður bæjarráðs í sveitarstjórn þegar miklar sjóhamfarir gengu yfir samfélögin á Austurlandi. Allar bryggjur eyðilögðust á Eskifirði og bærinn var eins og eftir borgarastyrjöld 30. desember 2015. Þá var það ákvörðun hafnarsjóðs og bæjarstjórnar að ekki væri hægt að bíða eftir ríkinu. Það var bara farið í að grjótverja samfélagið.
Ef ég skil rétt er kostnaðarhlutdeildin sú að ríkið borgar sjö áttundu hluta af kostnaðinum. Ég held að ég fari rétt með en hv. þingmaður leiðréttir mig þá. Ég velti því fyrir mér, ef við færum í þetta til að geta ráðist í fleiri verkefni, hvort hv. þingmaður sér fyrir sér að kostnaðarhlutdeild sveitarfélaga yrði aðeins aukin þarna. Nú er hæstv. ríkisstjórn að gera það varðandi Hafnabótasjóð. Finnst hv. þingmanni að sveitarfélög ættu að taka meiri þátt úr því að það þurfa að koma inn meiri peningar?