samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir annað andsvar. Það sem gerðist á Eskifirði var ekki í lagi, að sveitarfélagið þyrfti að grípa til þessa sjálft. Við sjáum að það er eitthvað sem er ekki í lagi. Að mínu mati verður að fara í heildarskoðun á þessu. Þetta mun ekki hverfa. Ef við skoðum fréttir sjáum við að þetta mun aukast. Það hefur gerst í mínu kjördæmi líka. Ég held að það sé mjög brýnt að þetta verði endurskoðað frá grunni og ekki metið út frá huglægu mati heldur á að ráðast í þetta út frá því sem er í gangi í samfélaginu í dag.